Leita í fréttum mbl.is

Jónas í hvalnum...

Jæja, er nú kominn tími til að skoða hvað aðrir í kringum okkur hugsa þegar þeir heyra orðið "Ísland".  Sú var tíðin að ég treysti bankamönnum og jafnvel stjórnmálamönnum til að vita hvað þeir voru að tala um, þrátt fyrir að sérfræðingar utan úr heimi spáðu okkur eldi brennisteini af himnum ofan ef við færum ekki að sjá að okkur.

Þetta hljómaði eins Jónas í hvalnum hér forðum.  Munurinn er bara sá að þegar hann hundskaðist á staðinn til Níníve til að flytja sinn iðrunarboðskap, þá hlustuðu þeir og létu segjast.

Á slíku virðist enn ekki vera farið að bóla hér á Íslandi og þó eru óyggjandi merki þess að iðrunar sé þörf.

Ég tek hjartanlega undir með þeim röddum að endurnýja þurfi mannskapinn sem stendur við stjórn ríkisfjármála, seðlabanka og eftirlitsstofnana, þó ekki væri til annars en að byggja traust okkar almennings á þessu kerfi.  Ég veit að ég tala fyrir munn margra að traust fólks til þessara stofnana er lítið sem ekkert og það breytir engu, nema síður sé að bankarnir séu orðnir ríkisbankar með pólitískum bankaráðum.

Þetta gengur ekki svona og nú verða menn að fara að skoða hvers konar þjóðfélag við viljum búa okkur og börnum okkar í framtíðinni.

Ég segi fyrir mig að í því þjóðfélagi sem ég sé fyrir mér gína bankar ekki yfir öllu með okurvöxtum og verðtryggingu til öryggis.  Ekki heldur ríkisbankar.  Stöðugleiki verður að ríkja þar sem geðþóttalegar ákvarðanir breyta öllum skilyrðum fólks og fyrirtækja án fyrirvara, og skilyrði til eignamyndunar verða að vera fyrir hendi, sem eru engin við þau vaxta og verðbótakjör sem ríkt hafa.

Áfram Ísland...!!!


mbl.is Telja að óreiðumenn stjórni bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

„...það breytir engu, nema síður sé að bankarnir séu orðnir ríkisbankar með pólitískum bankaráðum.“ segirðu. Þarna held ég að lykilorðin séu „síður sé“ því ég hef fregnað innan úr skilanefnd að þeir sem þar starfa séu í afar erfiðum málum því ráðherrar og aðrir pólitíkusar séu sífellt á bakinu á þeim til að „redda“ sínum mönnum.

Sá aðili sem sagði mér þetta sagði að skilanefndirnar hafi ekki vinnufrið fyrir svona kvabbi og gætu í mörgum tilfellum ekki unnið vinnuna sína!

Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 16:53

2 Smámynd: Jón Ágúst Reynisson

Það er einmitt þetta með þennan pólitíska lobbýisma, það er sorglegt að horfa á menn verða að leikbrúðum í höndum hinna sem virðast bara sitja bak við tjöldin.

Getur maður virkilega sofið rólegur á nóttunni sem kosinn fulltrúi lýðræðisins, en í raun að vinna að allt öðrum hagsmunum...?!?

Það væri ekki fyrir minn maga!  En ég er kannski bara gamaldags að vænta þess að dyggðir eins og orðheldni og sjálfsvirðing hafi einhverja merkingu, hver veit...?

Jón Ágúst Reynisson, 17.1.2009 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Ágúst Reynisson
Jón Ágúst Reynisson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband